fbpx

Ær Medium

Tvíband – 200m ~ 100g – Prjónar 4,5-5,5
Prjónfesta 18×23 WPI 9

Hrein íslensk nýull að norðan.
Náttúrulegt ólitað ullarband að fullu niðurbrjótanlegt.
Spunnin ull af fullorðnum ám úr Norður-Þingeyjarsýslu.
Spunnin í litlu ullarvinnslunni okkar í Gilhaga.

Ull íslenska sauðkindarinnar er
samsett úr mjúku þeli og sterku togi.
Þelið eru mjúkir og stuttir þræðir sem liggja næst kindinni.
Togið er veðurkápan, langir og sterkir þræðir
Þessi samsettning hjálpar þeim að þola
íslenska veðráttu einstaklega vel.

Þessir náttúrulegu eiginleikar í bandinu okkar
gera prjónið þitt bæði hlýtt og mjúkt.