fbpx

Lamb Fine

Tvíband – 160m ~ 50g – Prjónar 2,5-3,5
Prjónfesta um 22×35 á 10cm WPI 12

Hrein íslensk nýull að norðan.
Náttúrulegt ólitað ullarband að fullu niðurbrjótanlegt.
Spunnin ull af lambfé úr Norður-Þingeyjarsýslu.
Spunnin í litlu ullarvinnslunni okkar í Gilhaga.

Ull íslenska lambsins er
samsett úr mjúku þeli og sterku togi.
Þelið eru mjúkir og stuttir þræðir sem liggja næst kindinni.
Togið er veðurkápan, langir og sterkir þræðir
Þessi samsettning hjálpar þeim að þola
íslenska veðráttu einstaklega vel.

Þessir náttúrulegu eiginleikar í bandinu okkar
gera prjónið þitt bæði hlýtt og mjúkt.